miðvikudagur, febrúar 14, 2007

Noregsferð 8-13 febrúar

Ég kom heim í gær og er fárveik L það var svo rosalega kalt þarna, allt að -18 og -20 á næturnar! En samt var ég heppin að hafa ekki orðið veik strax þegar ég fór út.Já ég og Hanna Lára höfðum það bara TOPP þarna og við shoppuðum soldið mikið.Ég keypti fullt af fötum handa Edda manninum mínum og soninn Gísla :D Fann ekkert neitt voða mikið á mig því að mér fannst tískan fyrir konur þarna úti ekki vera neitt svo spés fyrir mig en strákafötin voru geðveik þarna! Kannski ætti ég bara að byrja að nota stráka föt :D Á laugardeginum fórum við Hanna á geðveikt djamm, fyrst fórum við í partý og svo í bæinn. Eftir það enduðum við heima hjá vini okkar Gunnari og Stine og drukkum þar áfram. Næstu dagarnir voru bara notaðir í að hanga og slappa af því að ég og Hanna “kláruðum” eiginlega að shoppa fyrstu dagana.Mér fannst mjög gaman að hitta marga en samt hitti ég ekki alla sem ég þekki. Það besta var að geta hitt Stine aftur :D Hún er svo frábær vinkona og alltaf geðveikt gaman að djamma með henni. Þið getið hvort sem eð sjálf séð það á myndunum sem ég á eftir að setja upp á myndasíðunni minni :D
Hanna Lára mín, það var frábært að ferðast með þér til Noregs og við ættum að gera það aftur seinna ;)

En annars er ég búin að láta breyta nafninu mínu og heiti núna Lísa Marín :D

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Velkomin heim sæta mín!
Gott að heyra að þið Hanna Lára skemmtuð ykkur vel í Noregi! Hlakka til að sjá myndirnar.
Knúzz og láttu þér batna!
Sólrún

14 febrúar, 2007 14:05  
Blogger Lísa Marín said...

Hæ, já það var geðveikt úti :D
Læt myndirnar inn fljótlega ;)
Sjáumst,knúz

14 febrúar, 2007 15:09  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ, gaman að lesa bloggið og láttu þig batna. Til hamingju með nafnabreytingu. Lísa Marín ég á eftir að venjast breytingu en nafnið hljómar vel.
Kv Hjördís Anna

16 febrúar, 2007 13:00  

Skrifa ummæli

<< Home