Þreyta og Noregur
Vá hvað ég er búin að vera þreytt síðustu daga, var á næturvöktum í vikunni og eftir það er ég bara búin að vera sofandi mikið. Þetta hlýtur að vera uppsöfnuð þreyta og það gerist jú stundum fyrir alla :)
Er búin að hafa það fínt, á föstudaginn bauð Eddi mér á Caféhús og við fengum okkur gott að borða og síðan kíktum við í Kringluna. Um kvöldið eldaði ég kjúkling í ofni fyrir systkinin mín, ég held að þetta hafi verið í fyrsta sinn í LANGAN tíma sem að við systkinin borðum saman kvöldmat. Mamma og pabbi eru úti í Kanarí með Snædísi frænku og hafa það fínt þar :) *græn af öfund*!
Það eru bara 11 dagar þangað til ég fer til Noregs aftur, er sko sannarlega farin að sakna þess að búa þarna eða vera þarna. Það eru liðnir 14 mánuðir síðan ég var þarna :) ó hvað ég ætla sko að fá mér lømpe med kyllingpølse, potetsalat og ketchup! *slef*! (Lumma með kjúklingapylsu, kartöflusalati og tómatsósu).
Það eru nokkrir staðir þarna sem ég virkilega sakna... t.d Frogner Parken, Karl Johansgate, National theatre og Aker brygge.Frogner Parken er stór grasagarður sem er ekki langt frá Majorstua, á sumrin keyptum við okkur oft einnota grillpakka, pylsu ásamt meðlæti og fullt af bjórum. Fórum þangað í Frogner Parken, sátum þar í sólbaði, spiluðum og drukkum Ringnes eða Tuborg bjóra. Ó guð hvað ég sakna sumarið ´05 sem ég hafði það svo yndislega gott með vinum mínum úti, þá aðalega Stine Bay. Karl Johansgate er "laugavegurinn" í Osló. National theatre er fallegur staður með bekkjum og gosbrunnum. Aker Brygge er bryggja í Osló með fullt af bátum, bæði stórum og litlum, þar eru líka fullt af veitingahúsum og bari.

5 Comments:
Aww...Þú ætti að hugsa þér að vinna við að selja ferðalög. Bara að lesa góðar minningar og tilhlökkun þína yfir að fara til Óslóar þá seldi þú mér nánast ferðina.
Hafðu það allra besta og góða ferð.. ;-) Kveðja Hjördís Anna
Ohh já ég tek undir Hjördísi, þú nærð að lýsa þessu svo vel að manni langar til Noregs að sjá þessa staði sem þú talaðir um. Akerbrygge er rosalega skemmtilegur staður, en það eru 8 ár síðan að ég var síðast í Noregi, vá! Langt síðan en samt ekki... tíminn er ótrúlega fljótur að líða! :-(
Knúzz
uhh.. ég náði ekki nafninu þínu?? Væri fínt ef þú myndir alltaf skilja eftir nafn svo að ég viti hver er að commenta. Takk! :)
Ohh fyrirgefðu mér, ég hélt að nafnið mitt hefði komið fram þegar ég kommentaði um daginn. Einhver klaufavilla hjá mér, hehe úps :$
Hafðu það gott um helgina dúlla og farðu vel með þig!
Knúzz
Sólrún
Það var gaman að hafa systakvöld hjá okkur... við vorum alltof vitlausir með kökuna, úps.
En þú ert nú þegar í Osló, I ENVY YOU SO MUCH.. i wish i were already there with you and ignore the school plan. :)
Skrifa ummæli
<< Home