2007
Er búin að vera í fríi í 3 daga en fer að vinna á morgun og það verður gott að geta haft nóg að gera. Ég er frekar fúl yfir því að hafa fengið inngöngu á stuðningsfulltrúanámið en fékk engan túlk :( Vona bara að ég geti klárað þetta í haust þó að það sé langt þangað til.Er búin að bæta við börnum á barnaland inn á bloggsíðuna, aww... litlu börnin eru svo mikil krúsidúllur! Þarf að eignast mér eitt eða tvö stykki eftir nokkur ár! :) Ætla allavega fyrst að njóta lífsins, ferðast kringum heiminn og hafa gaman af lífinu. Er búin að bóka mér ferð til útlanda með elskunni minni Hönnu Láru :P Hlakka voða til.
Það sem er að pirra mig þessa dagana er snjórinn, en væri samt alveg voða til í að fara út til Noregs á snjóbretti, fjöllin þar eru há og góð!
Ætla að stinga af og kíkja í heimsókn.
Vona að þið hafið það gott og hugsið vel um ykkur og hvort annað :)


3 Comments:
Gott hjá ykkur að fara saman til Noregs! Það verður æðislegt hjá ykkkur! Já ég efast ekki um að þú munt eignast eitt eða tvö stykki eftir tvö ár, krílin þín verða örugglega gullfalleg eins og mamma þeirra! ;o)
Farðu vel með þig og við sjáumst vonandi fljótlega!
Knús!!
Æji takk æðislega ;) Hlakkka til þess já :)
Þú munt líka pottþétt eiga falleg börn í framtíðinni :D
Sjáumst fljótlega skvíz!
Knúz
Æji takk elsku dúllan mín! :D
Hafðu það ógeðslega gott um helgina og við sjáumst fljótlega sæta!
Knús
Skrifa ummæli
<< Home