miðvikudagur, september 27, 2006

Takið lífið ekki of alvarlega, lífið er brilliant!

Hvað and******* er að fólki í dag? afhverju þurfa næstum allir að vera svona dómharðir og grimmir?!
ENGINN á að taka lífið of alvarlega, það hjálpar ekkert enda kemst enginn lifandi frá lífinu! Þegar ókláruð mál liggja ennþá hálflokuð þá á að klára að fara í gegnum það til að það sé möguleiki að loka "bókinni" og leggja það til hliðar. En ekki vera að geyma "bókina" hálflokaða og þá kannski gommu af þeim! Sumt fólk geta sýnt svo óþroskaða hegðun með því að "hlaupa í burt" og vilja ekki leysa vandamálin! Það er sko rosalega BARNALEGT!
Ég vildi óska að ég gæti gjörbreytt heimnum til þess allir séu góðir við hvor aðra og læra meira að segja að klára að leysa vandamál án þess að hlaupa í burtu í fýlu, sýna ofbeldi eða ekki nenna að vera heiðarlegt og tala við manneskjuna um ókláruð mál!
Alltof margir taka djóki alltof alvarlega, hef lent í því að sjá hvað fólk er heimskt að hafa ekki fattað að djók getur bara verið djók! Auðvitað hef ég lent í því að hafa tekið djóki illa en ég hef bara lært af því að taka því ekki of alvarlega því þá kem ég mig áfram í lífinu heldur en að standa í sömu djók-rútínu!
Ef djók væri ekki til þá væri lífið ekkert svo spennandi eða skemmtilegt, djók er hluti af lífinu. Það er gaman að djóka og fá alla til að hlæja! Heimurinn er ALLTOF lítill til þess að fólk séu óvinir, talið við fjendmenn ykkar og leysið vandamálin. Þá líður öllum miklu betur og lífið er þá léttara!
MUNIÐ að við erum öll mannleg og getum lært af mistökum :) Gangi ykkur vel og verið góð við hvort annað :)

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Nákvæmlega það sem mér finnst líka, tala málin út í staðinn að sýna þögult (andlegt) ofbeldi á móti.
Kveðja
Eddi

27 september, 2006 18:53  

Skrifa ummæli

<< Home