laugardagur, september 09, 2006

Komin heim og við tekur vinnan, æfing og skemmtun

Jæja þá er komið að því að blogga aftur, vona bara að síðan frjósi ekki í þetta skipti annars gefst ég upp.
Ég ætti bara að byrja á því að anda djúpt og reyna að fá taugarnar til að slaka á áður en ég byrja að pikka á lyklaborðinu og skrifa allt saman aftur! Púff hvað þetta verður erfitt :P
Kannski vitið þið ekki öll að ég er komin heim, en allavega þá er ég komin heim frá Mallorca. (Fór þangað í vinnuferð með sambýlinu). Vildi óska að ég væri þarna ennþá núna! Ég og sólin eigum eitthvað svo vel saman! Þessvegna er ekkert skrítið að ég sé með svona "sól-tribal" tattoo :D
En nóg um það, það var æðislegt úti á Mallorca. við vorum á svona íbúðarhóteli Marina Plaza á Playa de Palma. Á Playa de Palma eru bara veitingahús, hótel, íbúðarhótel, búðir, djammstaðir. Ekkert neitt rosalega mikið að gerast þarna nema á kvöldin, þá eru svona markaðir við ströndina og þar var hægt að finna allskonar dóterí og drasl! Ég naut þess í botn að vera þarna í sólinni en þar fyrir utan var mikil vinna.. allt upp í 14 tíma vaktir á hverjum degi en fengum jú frí í nokkra daga inná milli.
Það var frekar skrítið að koma heim úr sólarlandi alveg orkulaus og batterín alveg tóm! Þannig ég er bara á fullu að hlaða batterín þessa daga hérna á Íslandi! :(
Er mikið að pæla í að kaupa mér kort á líkamsræktarstöð, hef ekkert verið að æfa í 2 mánuði og það er bara æðislegt að fá pásu í smá tíma.
Hreyfing í Faxafeni er í fyrsta sæti hjá mér, er mest opin fyrir þessum stað enda er staðurinn fínn og passlega stór. Tækin þar eru mjög góð og fjölbreytt.
Þarf bara spark í rassinn til að drífa mig þangað og kaupa mér kort ;)
Eitt enn þá er Hreyfing að fara að flytja í nýtt húsnæði í Glæsibæ á næsta ári þá toppar það bara allt :D :D En vona bara að það verði ekki jafn stórt og World Class í Laugum því að það er ALLTOF stórt þarna :/

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Velkomin heim og húrra fyrir þér að blogga enn aftur þó það frjósi. Sé þig á röltinu eða einhvers staðar :o)

11 september, 2006 21:04  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ takk æðislega! Já við sjáumst fljótlega skvíza :D

11 september, 2006 23:00  
Anonymous Nafnlaus said...

Velkomin heim aftur :) Hef nú þegar séð þig en vonandi spjöllum við saman fljótlega :)

14 september, 2006 08:41  

Skrifa ummæli

<< Home