föstudagur, júní 09, 2006

Vinna og vinna = vinnualki??


Það er búið að vera mikið álag hjá mér síðustu vikurnar í vinnunni. Er alltaf að vinna, reyni að vera dugleg að fara á æfingu þegar ég hef tíma. Hef ekki haft mikinn tíma til þess að hitta vini mína, t.d um helgina er mér boðið í 2 afmælispartý og efast að ég komist í þau bæði. Er á löngum vakt um helgina og get þá ekkert verið að djamma með liðinu þó að mig langi til þess. En er ekki að vinna þar næstu helgi 16-18júni, þá ætla ég að gefa mér tíma til að hitta vini mína :)
Vona bara að það verði gott veður á þjóðhátíðardeginum og þá með 20+ stiga hita og sól!! Plís Guð.. gerðu það!! :D
Það eru 18 dagar þar til ég og Ívar förum til Tyrklands! Hlakka ekkert smá til að komast í frí og þá slappa af í heilar 2 vikur :D Við Ívar verðum alveg pottþétt alveg úthvíld þegar við komum tilbaka :)
(Setti bleikan punkt á kortið af Tyrkland, þannig þið sjáið hvar í Tyrklandi við verðum)

Hvað er annars að frétta hjá ykkur?

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Djíí það á eftir að vera gaman þarna úti í Tyrkjaveldi. Ég má nú öfunda þig pínu ekki satt ? vonandi sé ég þig líka eitthvað yfir 16-18 júni.

09 júní, 2006 22:33  
Anonymous Nafnlaus said...

Hellú...ég er ekki alveg viss hver þú ert?? Kveðja Lísa

10 júní, 2006 23:58  
Anonymous Nafnlaus said...

Úpps Heiðdís hér ;o) segi nú bara svo Góða ferð út ef ég sé þig ekki fyrir og njóttu nú þess í botn að slappa af með ástinni.

15 júní, 2006 15:28  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, maður sér þig nú ekki oft núna en það eru skemmtilegar tímar framundan, bara njóttu ferðina vel. Vonandi hittumst við áður en sumarrússibaninn fer af stað.
Kveðja Hjördís Anna

15 júní, 2006 23:23  
Anonymous Nafnlaus said...

Já hehe, takk takk ;)
Jú örugglega hittumst við áður en ég skelli mér út í sólina ;)
Sé ykkur skvízurnar örugglega á laugardaginn 17.júni ;)

16 júní, 2006 00:18  
Anonymous Nafnlaus said...

Hii :) við hittumst alltof sjaldan núna, þegar ég er í partý þá ertu heima eða þegar ég er heima þá ertu í partý, hehe ;) Hittumst nú áður en ég fer í æskó. :) Hljómar vel staðinn sem þið verðið í!! :D nálægt ströndin og allers. Kveðja Hanna Lára :)

19 júní, 2006 16:12  

Skrifa ummæli

<< Home