mánudagur, mars 06, 2006

Vinna, æfa og skóli!


Jæja, ég viðurkenni það alveg að ég er ekkert búin að vera dugleg að blogga hérna.
En annars er ágætt að frétta hjá mér, er búin að vera á fullu að æfa, vinna og skólast!
Er hætt á Pizza Hut og byrjuð að vinna á Sambýli. Það er ekkert smá fínt að vinna þar enda er það miklu rólegara heldur en á Pizza HUT! *ullabjakk*

Ég fór í verslun um daginn.
Ég var bara í 5 mínútur og þegar ég kom út var
djöfilsins andskotans lögga að skrifa sektarmiða.
Svo ég gekk að honum og sagði, "Heyrðu félagi, hvernig væri að gefa mönnum
smá sjéns ?"
Hann leit ekki við mér og hélt áfram að skrifa sektarmiðann, svo ég kallaði hann blýantsnagandi nasista. Hann leit snögg á mig og byrjaði á því að skrifa annan sektarmiða fyrir of slitin dekk undir hjólinu.
Þá kallaði ég hann rolluríðandi, hoppandi fáráðling. Hann lauk við að skrifa miða nr. 2 og setti hann á hjólið með fyrsta miðanum. Svo byrjaði hann að skrifa þriðja miðann !! Svona gekk þetta í um 20 mínútur,því meira sem ég svívirti hann, því fleiri sektarmiða skrifaði hann. Mér var í raun andskotans sama,en þið hefðuð átt að sjá svipinn á honum þegar ég fór yfir götuna að hjólinu mínum,fór á hann og keyrði burt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home