mánudagur, mars 13, 2006

Barþjónninn veit hver þú ert ! – drykkurinn segir allt…


Áður en þú pantar drykk á barnum ættirðu að lesa þetta vandlega.
Sjö barþjónar frá New York voru spurðir að því hvort þeir gætu sagt til um
persónuleika kvenna eftir því hvað þær pöntuðu sér á barnum. Þrátt
fyrir að vera spurðir í sitt hvoru lagi voru svörin nánast þau sömu.


Niðurstöðurnar:
Drykkur: Bjór
Persónuleiki: Óformleg, ekki þurftafrek; jarðbundin.
Nálgun: Skoraðu á hana í billjarð.

Drykkur: Hrærðir drykkir
Persónuleiki: Óáreiðanleg, síkvartandi, skapraunandi; alveg óþolandi.
Nálgun: Forðastu hana nema þú viljir vera skósveinninn hennar.

Drykkur: Blandaðir drykkir
Persónuleiki: Þroskuð, fáguð, þurftafrek, horfir í hvert smáatriði; veit upp á hár hvað hún vil.
Nálgun: Þú þarft ekki að nálgast hana. Ef hún hefur áhuga mun hún
senda ÞÉR drykk.

Drykkur: Léttvín (Zinfandel hvítvín undanskilið)
Persónuleiki: Íhaldssöm og smekkleg; veraldarvön en fjörkálfur.
Nálgun: Segðu henni að þú elskir að ferðast og njóta rólegra
kvöldstunda í góðra vina hópi.

Drykkur: Zinfandel hvítvín
Persónuleiki: Einföld; telur sig vera smekklega og veraldarvana en hefur í raun enga hugmynd hvað það er.
Nálgun: Láttu henni finnast hún klárari en hún í raun er… þetta ætti
að vera einfalt skotmark.

Drykkur: Skot
Persónuleiki: Kann því vel að hanga með hóp stráka og er mikið fyrir að vera vel drukkin… og nakin!
Nálgun: Auðveldasta skotmarkið á staðnum. Þú hefur heppnina með þér.
Gerðu ekkert nema bíða, en ekki reita hana til reiði!

Drykkur: Tequila
Engin þörf á frekari skýringum – segir allt sem segja þarf.

SVO, smá viðauki um karlmennina – en aðförin ad strákum er alltaf mjög
einföld og skilvirk:
Innlendur bjór: Hann er fátækur og langar að ríða.
Innfluttur bjór: Hann kann að meta góðan bjór og langar að ríða.
Vín: Hann lifir í þeirri von að vínið gefi honum veraldarvant yfirbragð sem auki líkurnar á að fá á broddinn.
Viskí: Honum er skítsama um allt nema að fá á broddinn.
Tequila: Hann telur sig eiga sjens í tannlausu þjónustukonuna.
Zinfandel hvítvín: Hann er hommi!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home