Gleðilegt nýtt ár

Það er svaka skrítin tilfinning að síðasti dagurinn árið 2005 er að líða!!
Árið 2005 er búið að vera æði hjá mér, er búin að ferðast rosa mikið og upplifa svaka mikið úti í Noregi.. æðislegt.. en samt er Ísland alltaf best :)
Mun jú fara oft út í framtíðinni.. elska að ferðast einsog þið vitið ;)
Er búin að vera í íþróttafötum hérna heima.. ekkert að nenna að pússa mig upp nema þegar ég fer út á eftir í áramótapartý uppí árbæ hjá vini mínum.
Það verður sko troðfullt af fólki þar að fagna nýju ári sem er að koma.
Svo á næstu daga þarf ég að finna mér bíl! er ekkert að geta beðið eftir að fá mér bíl. Samt er ágætt að fá bílinn mömmu og pabba í láni af og til þegar mig vantar.
En það verður æði að fá eigið bíl :D
Jæja þá segi ég bara "Gleðilegt nýtt ár og farsælt komandi ár" :D
Happy new year 2006 to you all :D


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home