miðvikudagur, nóvember 16, 2005

38 dagar í jólin

Veii,það eru bara 38 dagar í jólin samkvæmt upplýsingum frá Lilju frænku ;)
og 1 mánuður þar til ég fer í jólafrí :P
Það verður geggjað að komast heim til Íslands og fá íslenskan mat, skyr! Líka HREINT ÍSLENSKT vatn! :P
Síðustu dagarnir eru búinir að vera mildir, ekkert snjór hérna ennþá. Í morgun varð voða kalt úti og það er búið að vera skítakuldi í allan dag, frétti hjá vini mínum í Stavanger að það er snjór og hálka þar.
Hmm.. hverning er veðrið heima á Íslandi þá?
Vildi óska að veðrið á Íslandi væri alveg einsog í sólarlöndum, en allavega samkvæmt vísindamönnum þá er ozon lagið svaka skemmt. Þannig að veðrið er alltaf mildara og mildara. Það er jú bara ágætt.. þau í afríku eru jú búin að hafa sólina alltof lengi og það væri sko sanngjarnt að þau skiptust við okkur og fengju jú snjóinn og kuldan til sín. Við mættum jú gjarnan fá sólina og hitann þá!
Hljómar þetta ekki vel hjá mér? hihi

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

En þá deyja allir í Afríku af því þeir eiga ekki hús með hita eins og við...ekki einu sinni föt! :/ En það verður gaman að fá þig heim og vonandi verður krílið fætt áður en þú ferð út aftur... ;)

17 nóvember, 2005 17:42  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er alveg ágætt að fá sólina af og til hér á skerinu. Hlakka til að sjá þig um jólin ;o) maður er þá hér á landinu ekki hinum megin við hnöttinn eins og síðast.

17 nóvember, 2005 20:32  

Skrifa ummæli

<< Home